Óskarsverðlaunaleikkonan Jennifer Lawrence gekk í hjónband með listaverkasalanum Cooke Maroney fyrir skömmu. Eftir brúðkaupið fóru hjónin í brúðkaupsferð á alhliða lúxushótel sem eitt sinn var valið það besta í heimi af virtu ferðatímariti fyrir tveimur árum.
Hótelið sem þau Lawrence og Maroney dvelja á heitir Nihi Sumba Resort að því er fram kemur á vef People og er á afskekktri eyju í Indónesíu. Eyjan er þekkt fyrir lúxusgistingu og brimbrettamenningu. Hjónin eru sögð hafa farið á hestbak á eyjunni og heimsótt þorp eyjaskeggja.
Hjónin eru sögð gista í þessari villu sem er kölluð Mendeka.
ljósmynd/Nihi Sumba Resort
Hótelið samanstendur af litlum villum eins og hér má sjá.
ljósmynd/Nihi Sumba Resort
Rúm á hótelinu í villu sem kallast Wamoror.
ljósmynd/Nihi Sumba Resort
Það væri ekki leiðinlegt að baða sig þarna.
ljósmynd/Nihi Sumba Resort
Jennferi Lawrence og Cooke Maroney eru sögð hafa farið á hestbak.
ljósmynd/Nihi Sumba Resort