Sjókvíaeldi Háafells stækki um 350%

MAST leggur til að rekstrarleyfi verði gefið út fyrir sjö …
MAST leggur til að rekstrarleyfi verði gefið út fyrir sjö þúsund tonna sjókvíaeldi í Ísafjarðardjúpi. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Mat­væla­stofn­un hef­ur unnið til­lögu að rekstr­ar­leyfi sjókvía­eld­is Háa­fells ehf. í Ísa­fjarðar­djúpi sem fel­ur í sér að heim­iluð fram­leiðsla vaxi um 350% frá fyrra leyfi. Verði til­lag­an samþykkt mun heim­ild­in fara úr tvö þúsund tonn­um af regn­bogasil­ungi og þorski í sjö þúsund tonn af regn­bogasil­ungi og þorski, að því er seg­ir í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni.

Hægt verður að gera at­huga­semd­ir við til­lög­una og með til­heyr­andi fylgigögn­um til 12. des­em­ber 2019.

„Skipu­lags­stofn­un tel­ur að helstu nei­kvæðu áhrif fyr­ir­hugaðs fisk­eld­is […] í inn­an­verðu Ísa­fjarðar­djúpi fel­ist í auk­inni hættu á að sjúk­dóm­ar og laxal­ús ber­ist frá eld­inu í villta lax­fiska­stofna á svæðinu og að regn­bogasil­ung­ur sem sleppi úr eldi í mikl­um mæli kunni að hafa nei­kvæð áhrif á orðspor viðkom­andi áa ef hann veiðist þar í um­tals­verðu magni,“ seg­ir í um­sögn Skipu­lags­stofn­un­ar.

Stofn­un­in tel­ur hins veg­ar að „ekki verði full­yrt að fyr­ir­huguð fram­kvæmd muni hafa veru­leg nei­kvæð áhrif á nátt­úru­lega stofna lax­fiska í Ísa­fjarðar­djúpi.“

mbl.is