Arnarlax, stærsta fiskeldisfyrirtæki landsins, verður í dag skráð á NOTC, lista kauphallarinnar í Osló fyrir minni fyrirtæki.
Kjartan Ólafsson stjórnarformaður segir að það hafi þá kosti að skrá fyrirtækið á markað í Noregi að þar sé mikill áhugi og þekking á fiskeldi. Fyrirtækið fái nú athygli greiningarfyrirtækja sem fylgist grannt með.
Nefnir hann að færeyska fiskeldisfyrirtækið Bakkafrost hafi ákveðið, af þessum sökum, að skrá hlutabréf sín í kauphöllinni í Osló í lok síðasta árs þótt beinna hefði legið við að skrá þau í Kaupmannahöfn vegna mikilla viðskiptatengsla þangað.
Stjórnendur Arnarlax stefna að því að félagið fái skráningu á aðallista kauphallarinnar í Osló þegar það hefur náð réttri stærð. Kjartan vonar að það geti gerst á næsta ári. Rekstur Arnarlax hefur gengið vel það sem af er ári og hafa orðið mikil umskipti frá árinu 2018 sem var félaginu erfitt, m.a. vegna áfalla í eldinu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.