Rapparinn Will.i.am hefur sakað flugþjón flugfélagsins Qantas um kynþáttafordóma. Will.i.am segir frá upplifun sinni í færslum á Twitter um helgina.
Will.iam var í flugi á laugardaginn frá Brisbane til Sydney í Ástralíu. Hann segir að flugþjónninn hafi bara skammað hann eftir að hann heyrði ekki tilkynningu um að hann ætti að pakka saman fartölvunni sinni.
Hann segist ekki vilja trúa því að flugþjónninn hafi kynþáttafordóma, en að hún hafi beitt sér gegn öllum þeim sem voru ekki hvítir í fluginu. Þegar hann lenti í Sydney tóku lögreglumenn á móti honum. Hann segir á Twitter að hann skilji ekki af hverju lögreglan var kölluð til.
I’m currently on a flight from Brisbane to Sydney.
— will.i.am (@iamwill) November 16, 2019
I’m sorry to say me and my group have experienced they worse service due to a overly aggressive flight attendant...
I don’t want to believe she racist.
But she has clearly aimed all her frustrations only at the people of colour
Qantas hefur svarað ásökunum rapparans með tilkynningu. „Það var miskilningur um borð sem virðist hafa sprottið af því að Will.i.am var með hljóðeinangrandi heyrnartól og gat þess vegna ekki heyrt tilkynningar frá áhöfninni. Við munum hafa samband við Will.i.am og óskum honum góðs gengis á tónleikaferðalaginu,“ segir í tilkynningu Qantas.
I was intimidated by 5 police officers when I landed...for what? 🤷🏿♂️ I put away my laptop when she asked...why would she feel threatened by me to call the police? What did I do wrong? I wasn’t out of hand.. I was polite & did what she asked... now you’re asking me to take abuse? https://t.co/1390ThymY3
— will.i.am (@iamwill) November 16, 2019
Will.i.am nafngreindi umræddan starfsmann á Twitter og deildi mynd af henni. Hann hefur fengið að heyra það fyrir að nafngreina hana og hefur síðan þá beðið fólk um að láta hana í friði.
Aðrir farþegar úr umræddu flugi hafa einnig tjáð sig á Twitter og tekur einn undir með rapparanum og sagðist hafa tekið eftir framferði flugþjónsins gagnvart honum.