Fátítt að ríkisstofnun fækki svona mikið

Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar.
Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alls hafa fjór­tán látið af störf­um hjá Haf­rann­sókn­ar­stofn­un í dag. Tíu var sagt upp og fjór­ir úr yf­ir­stjórn­inni sögðu upp.

Þetta staðfest­ir Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri stofn­un­ar­inn­ar.

„Við buðum þeim að starfa áfram sem sér­fræðing­ar en þau vildu fara. Það var svo sem al­veg full­ur skiln­ing­ur á því,“ seg­ir hann um þá sem sögðu upp. Þau tíu sem fengu upp­sagn­ar­bréfið störfuðu flest í stoðþjón­ustu en inn­an henn­ar er fjár­mála­rekst­ur.

Spurður út í ástæðurn­ar fyr­ir upp­sögn­un­um og skipu­lags­breyt­ing­un­um seg­ir Sig­urður að Hafró vilji gera yf­ir­stjórn­ina skil­virk­ari og hag­kvæm­ari. Flutn­ing­ur stofn­un­ar­inn­ar í Hafn­ar­fjörð strax eft­ir ára­mót spil­ar einnig inn í en þar fer starf­sem­in öll á einn stað. Við það þurfi færra fólk vegna auk­inn­ar hag­kvæmni. Nýtt mót­töku­kerfi tengt nýja hús­inu fækk­ar einnig störf­um.

Skip Hafrannsóknarstofnunar, Árni Friðriksson RE, í Reykjavíkurhöfn.
Skip Haf­rann­sókn­ar­stofn­un­ar, Árni Friðriks­son RE, í Reykja­vík­ur­höfn. mbl.is/​Sig­urður Bogi

Rann­sókn­ar­starf­inu hlíft

Að sögn Sig­urðar er rann­sókn­ar­starf­inu að meg­in­leyti hlíft í þess­um aðgerðum, enda hafi stjórn­völd talað um að efla bæði haf-, og um­hverf­is­rann­sókn­ir. Það hafi þau að nokkru leyti staðið við. Aðspurður seg­ir hann aðgerðirn­ar ekki veikja stofn­un­ina að veru­legu marki. „Það slepp­ur til en við vild­um ekki tálga okk­ur meira.“

Tæp­lega 200 manns starfa hjá Haf­rann­sókn­ar­stofn­un. Sig­urður nefn­ir að það sé fátítt að rík­is­stofn­un fækki starfs­mönn­um svona mikið en tek­ur fram að Hafró sé stór stofn­un og tal­an hlut­falls­lega ekki mjög há. „Þetta er bú­inn að vera erfiður dag­ur og það er alltaf erfitt að segja upp fólki og kveðja gott sam­starfs­fólk,“ bæt­ir hann við.

Eins og mbl.is hef­ur áður greint frá verður um­hverf­is­sviðið lagt niður. Starf­sem­in hætt­ir þó ekki held­ur verður hún „samþætt enn bet­ur með líf­fræðinni og fiski­fræðinni þannig að það verði gott streymi þar á milli,“ að sögn Sig­urðar.

Í stað sviðs sem kall­ast upp­sjáv­ar­líf­ríki tek­ur við upp­sjáv­ar­svið og flytj­ast þangað inn um­hverf­is­rann­sókn­ir ásamt efna- og eðlis­fræði. Nýr sviðsstjóri verður ráðinn þangað í stað Þor­steins Sig­urðsson­ar sem var á meðal þeirra sem sögðu upp í dag.  

mbl.is

Bloggað um frétt­ina