Uppsagnir hjá Hafró

Hafrannsóknastofnun við Skúlagötu.
Hafrannsóknastofnun við Skúlagötu. mbl/Arnþór Birkisson

Fjór­um starfs­mönn­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar var sagt upp í morg­un. Þrír þeirra eru sviðsstjór­ar og einn er sér­fræðing­ur.

Um­hverf­is­svið stofn­un­ar­inn­ar var einnig lagt niður og verður það að ein­hverju leyti sam­einað öðrum sviðum.

Héðinn Valdi­mars­son, sviðsstjóri á um­hverf­is­sviði, staðfest­ir þetta í sam­tali við mbl.is, en hann er einn þeirra sem var sagt upp. 

Fleiri upp­sagn­ir eru fyr­ir­hugaðar í dag en ekk­ert hef­ur verið gefið upp um á hvaða sviði þær verða eða hversu mörg­um verður sagt upp.

„Við erum búin að vita af því að fjár­mögn­un stofn­un­ar­inn­ar er veru­lega áfátt. Það hef­ur passað illa við lof­orð rík­is­stjórn­ar­inn­ar um að efla haf­rann­sókn­ir,“ seg­ir hann, spurður hvort upp­sagn­irn­ar hafi komið hon­um í opna skjöldu.

Sviðsstjór­arn­ir þrír sem um ræðir voru yfir upp­sjáv­ar­sviði, gagna- og tölvu­sviði og um­hverf­is­sviði. Einnig var sér­fræðingi sagt upp sem starfaði sem vara­for­stjóri og for­stjóri stofn­un­ar­inn­ar fyr­ir sam­ein­ingu Hafró og Veiðimála­stofn­un­ar.  

mbl.is