Fundu IPN-veiru í sjókvíalaxi

Lax að lokinni slátrun úr laxeldi. Mynd úr safni.
Lax að lokinni slátrun úr laxeldi. Mynd úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Veira sem valdið get­ur sjúk­dómn­um br­is­drepi í fisk­um hef­ur greinst í laxi úr sjókví Laxa fisk­eld­is ehf. í Reyðarf­irði. Frá þessu er greint á vef Mat­væla­stofn­un­ar, sem seg­ir þetta í fyrsta sinn sem IPN-veir­an grein­ist í laxi á Íslandi. Hún var þó staðfest í lúðu árið 1999.

Veir­an upp­götvaðist í kjöl­far sýna­töku við reglu­bundið innra eft­ir­lit hjá fyr­ir­tæk­inu, en lax­inn sem veir­an greind­ist í er að sögn MAST heil­brigður og ástand laxa í kví­um al­mennt gott. Veir­an er skaðlaus mönn­um og berst ekki með fiskaf­urðum.

Þótt veir­an hafi greinst hef­ur br­is­drep (e. In­fecti­ous Pancreatic Necros­is — IPN) ekki enn komið upp í löx­um, en br­is­drep get­ur valdið tjóni í eldi einkum í ferskvatns­eldi á seiðum. Eru af­föll al­geng­ust í eldi smá­seiða í ferskvatni og í stálpuðum seiðum sem flutt eru smituð úr seiðastöð í sjókví­ar.

Til­rauna­stöð HÍ í meina­fræði að Keld­um vinn­ur nú að nán­ari staðfest­ingu og skil­grein­ingu á arf­gerð veirunn­ar í sam­vinnu við rann­sókna­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins í veiru­sjúk­dóm­um lag­ar­dýra í Dan­mörku, en mein­virkni veirunn­ar er mis­mun­andi milli arf­gerða.

IPN-veir­an hef­ur enn ekki greinst í ferskvatns­eldi á Íslandi, en um­fangs­mik­il vökt­un á veirunni hófst í klak- og seiðastöðvum árið 1985, jafnt í eld­is­fiski sem villt­um laxi, að því er fram kem­ur á vef MAST.

Veir­an er út­breidd í vatna- og sjáv­ar­dýr­um á heimsvísu, bæði í villtu um­hverfi og eldi. Þekkt er að eldri fisk­ur í sjó geti tekið smit úr um­hverfi án þess að sýna sjúk­dóms­ein­kenni og má leiða lík­ur að því að veir­an hafi borist í lax­inn úr um­hverfi.

Mat­væla­stofn­un hef­ur í varúðarskyni sett dreif­ing­ar­bann á starfs­stöð fyr­ir­tæk­is­ins að Bjargi í Reyðarf­irði sem mun gilda þar til slátrað hef­ur verið úr sjókví­un­um. 

mbl.is