Laxahrogn til landeldis víða um heim

Estrela Abelleira vinnur með hrogn frá Stofnfiski í seiðastöð Arctic …
Estrela Abelleira vinnur með hrogn frá Stofnfiski í seiðastöð Arctic Fish í Tálknafirði. Hún hreinsar egg og dauð seiði úr klakbökkunum. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Það er mik­ill áhugi á því að ala lax á landi. Verð á laxi hef­ur verið mjög hátt og eft­ir­spurn­in eykst stöðugt. Menn hafa verið að skoða þessa mögu­leika, sér­stak­lega þar sem langt er til fram­leiðslu­land­anna,“ seg­ir Jón­as Jónas­son, for­stjóri Stofn­fisks, en fyr­ir­tækið er þátt­tak­andi í land­eld­is­upp­bygg­ing­unni sem nú er að ganga yfir víða um heim.

Jón­as seg­ir að horft sé til þess í þess­um lönd­um að mikið er flutt inn af laxi með flugi, ýmis heil­um eða í flök­um. Með því að fram­leiða lax­inn á staðnum spar­ist flutn­ings­kostnaður. „Enn er talið að fram­leiðslu­kostnaður í land­stöðvum sé meiri en í sjókví­um. Marg­ir telja sig hins veg­ar geta unnið upp mun­inn með því að draga úr flutn­ings­kostnaði,“ seg­ir Jón­as.

Stofn­fisk­ur sel­ur hrogn til nýrr­ar land­eld­is­stöðvar í Miami í Banda­ríkj­un­um sem er með stór áform um stækk­un og til land­eld­is í Póllandi, Sviss, Dan­mörku, Kína og Dubai, svo dæmi séu tek­in. Hrogn­in sem Stofn­fisk­ur fram­leiðir hér á landi geta í fyll­ingu tím­ast orðið að 500 þúsund tonn­um af laxi. 

Meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: