Segja uppsagnirnar harkalegar

Starfsmennirnir segja að stjórnvöld beri ábyrgð á alvarlegri stöðu Hafró.
Starfsmennirnir segja að stjórnvöld beri ábyrgð á alvarlegri stöðu Hafró. mbl.is/Golli

Starfs­menn Haf­rann­sókna­stofn­un­ar segja að upp­sagn­ir gær­dags­ins hafi verið harka­leg­ar, fyr­ir­vara­laus­ar og án full­nægj­andi skýr­inga. Þetta kem­ur fram í álykt­un frá starfs­mönn­um stofn­un­ar­inn­ar.

Þar seg­ir að 14 starfs­mönn­um hafi verið sagt upp í gær. Þrem­ur hafi verið boðið nýtt starf, sem þeir höfnuðu. 

Starfs­menn­irn­ir segja að stjórn­völd beri ábyrgð á al­var­legri stöðu stofn­un­ar­inn­ar og hafa starfs­menn veru­leg­ar áhyggj­ur af framtíð Hafró. 

Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri stofn­un­ar­inn­ar, sagði í sam­tali við mbl.is í gær að vilji væri fyr­ir því að gera yf­ir­stjórn Hafró skil­virk­ari og hag­kvæm­ari.

mbl.is