Stofnfiskur selur hrogn til margra nýrra landstöðva

Í Dubai-eyðimörkinni Hluti af laxinum hjá Fish Farm er ræktaður …
Í Dubai-eyðimörkinni Hluti af laxinum hjá Fish Farm er ræktaður af hrognum frá stöð Stofnfisks á Suðurnesjum. AFP

Stofn­fisk­ur er þátt­tak­andi í þeirri bylgju upp­bygg­ing­ar fisk­eld­is í land­stöðvum sem nú er að ganga yfir víða um heim. Fyr­ir­tækið sel­ur laxa­hrogn til margra þess­ara stöðva. Þá eru syst­ur­fé­lög Stofn­fisks í Nor­egi og Síle að byggja upp hrogna­stöðvar sem tvö­falda fram­leiðslu­getu fyr­ir­tækj­anna.

„Það er mik­ill áhugi á því að ala lax á landi. Verð á laxi hef­ur verið mjög hátt og eft­ir­spurn­in eykst stöðugt. Menn hafa verið að skoða þessa mögu­leika, sér­stak­lega þar sem langt er til fram­leiðslu­land­anna,“ seg­ir Jón­as Jónas­son, for­stjóri Stofn­fisks sem frá ár­inu 2015 hef­ur verið hluti af Bench­mark Genetics, alþjóðlegu rann­sókn­ar- og ný­sköp­un­ar­fyr­ir­tæki á sviði fisk­eld­is. Jón­as er jafn­framt fram­leiðslu­stjóri Bench­mark-sam­stæðunn­ar.

Stór lax­eld­is­stöð í Miami

„Við erum að taka þátt í þess­um verk­efn­um víða um heim. Við erum með heil­brigðan stofn og höf­um leyfi til inn­flutn­ings hrogna í flest­um lönd­um heims,“ seg­ir Jón­as. Verið er að byggja upp áframeldi víða, til dæm­is í Banda­ríkj­un­um, Póllandi, Sviss, Dan­mörku, Kína og Sam­einuðu ar­ab­ísku fursta­dæmun­um.

Fyrsti áfangi stöðvar í Miami er 9 þúsund tonn en áform eru um allt að 90 þúsund tonna fram­leiðslu. Stofn­fisk­ur hef­ur selt mikið af laxa­hrogn­um þangað í eitt ár. Þau eru enn á seiðastigi og gert ráð fyr­ir að slátrun hefj­ist á næsta ári. Einnig sel­ur fyr­ir­tækið mikið til annarra fyr­ir­tækja sem eru að byggja upp land­eldi en þær stöðvar eru marg­ar að stefna að 5-10 þúsund tonna fram­leiðslu. Til sam­an­b­urðar má geta þess að hér á landi voru fram­leidd rúm 13 þúsund tonn í fyrra.

Áframeldi á laxi í land­stöðvum þarf stórt landsvæði og mikið vatn. Þumalputta­regl­an er sú að 5 þúsund tonna fram­leiðsla þarf jafn­mikið landsvæði og 5 knatt­spyrnu­vell­ir. Þá er upp­bygg­ing stórra land­eld­is­stöðva ekki mögu­leg nema jafn­framt sé sett upp end­ur­nýt­ing­ar­kerfi vatns (RAS) en sú tækni er víða að ryðja sér til rúms.

Þrátt fyr­ir auk­ingu í sölu til land­stöðva víða í heim­in­um eru stærstu markaðir Stofn­fisks á Íslandi og í Fær­eyj­um. Mikið er einnig flutt út til Skot­lands, Nor­egs og Síle.

Nán­ar má lesa um þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: