Dóttir Baltasars myndaði Sunnevu Ásu

Sunneva Ása Weisshappel og Baltasar Kormákur.
Sunneva Ása Weisshappel og Baltasar Kormákur. Samsett mynd

Listakonan Sunneva Ása Weisshappel er listamaður októbermánaðar í hverfisblaðinu Laugardalur, Háaleiti og Bústaðir. Athygli vekur að portrait-ljósmynd af Sunnevu tók Sóllilja Baltasarsdóttir en Sóllilja er dóttir Baltasars Kormáks, leikstjóra og leikara. 

Sunneva og Baltasar voru sögð vera að rugla saman reytum fyrr á árinu. Sást meðal annars reglulega til þeirra tveggja í sundi á höfuðborgarsvæðinu. Sunneva hefur greinilega ekki bara kynnst leikstjóranum vel undanfarin misseri heldur einnig dóttur hans sem sannast á myndinni. 

View this post on Instagram

Listamaður Októbers mánaðar Portrait @solliljabaltasars

A post shared by Sunneva Ása Weisshappel (@sunnevasa) on Nov 19, 2019 at 9:29am PST



mbl.is