Loftslagssjóður úthlutar 500 milljónum á fimm árum

Sjóðurinn heyrir undir Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, en …
Sjóðurinn heyrir undir Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, en Rannís hefur umsjón með sjóðnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn­völd verja um 500 millj­ón­um króna til nýs Lofts­lags­sjóðs á fimm árum. Þar af verða 140 millj­ón­ir króna til ráðstöf­un­ar í fyrstu út­hlut­un. Þetta kom fram á fundi í Nor­ræna hús­inu í há­deg­inu, þar sem sjóður­inn var kynnt­ur. Opnað er fyr­ir um­sókn­ir í dag og öll­um er heim­ilt að sækja um.

„Ég held að það sé gríðarlega mik­il­vægt að stjórn­völd leggi fjár­magn inn í svona verk­efni sem geta orðið að risa­stór­um verk­efn­um í framtíðinni. Þannig að ég er ofboðslega kát­ur í dag, glaður og brosi,“ sagði Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son, um­hverf­is- og auðlindaráðherra, í ávarpi sínu á fund­in­um.

Sjóður­inn er sam­keppn­is­sjóður sem heyr­ir und­ir ráðherra og hef­ur falið Rannís um­sjón með hon­um. Hægt er að sækja um að fá styrki úr fyrstu út­hlut­un sjóðsins til 20. janú­ar næst­kom­andi.

Kynn­ing­ar- og fræðslu­verk­efni eða ný­sköp­un­ar­verk­efni

Á fund­in­um var farið yfir áhersl­ur stjórn­ar Lofts­lags­sjóðs fyr­ir fyrstu út­hlut­un, sem og um­sókn­ar­ferlið. Boðið er upp á tvær styrk­teg­und­ir og eru styrk­ir veitt­ir til eins árs.

Ann­ars veg­ar er um að ræða styrki til kynn­ing­ar og fræðslu um lofts­lags­mál og get­ur styrkupp­hæð verið allt að 5 millj­ón­ir króna. Hins veg­ar er um að ræða styrki til ný­sköp­un­ar­verk­efna en þeim er m.a. ætlað að styrkja rann­sókn­ir og þró­un­ar­starf í tengsl­um við inn­leiðingu á nýj­um lofts­lagsvæn­um tækni­lausn­um og hönn­un. Ný­sköp­un­ar­styrk­ir geta verið allt 10 millj­ón­ir króna og numið allt að 80% af kostnaði verk­efn­is.

Stjórn Lofts­lags­sjóðs skip­ar fagráð sem met­ur styrk­hæfi um­sókna. Meðal þess sem haft verður til hliðsjón­ar eru já­kvæð áhrif verk­efn­is­ins á lofts­lag, hvort það hafi já­kvæð sam­fé­lags­leg áhrif, ný­næmi verk­efn­is­ins og hvort það muni nýt­ast víða í sam­fé­lag­inu.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina