Slysavarnaskólanum afhentir nýir flotgallar

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS, afhendir Hilmari Snorrasyni, skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna, …
Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS, afhendir Hilmari Snorrasyni, skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna, gallanna í dag. Ljósmynd/VÍS

Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, fékk afhent tíu nýja flotgalla frá VÍS og er þetta jafnframt í tíunda sinn sem tryggingafélagið gefur skólanum slíka galla. „Samstarfið við Slysavarnaskólann er liður í stóraukinni áherslu VÍS á öryggi sjómanna og forvarnir í sjávarútvegi,“ segir í fréttatilkynningu frá VÍS.

Þá segir að allir flotgallar sem nemendur og kennarar skólans nota til að æfa björgun og meðferð björgunarbúnaðar séu frá VÍS.

„Hér er unnið frábært starf og það er okkur sérstök ánægja að halda upp á 10 ára farsælt samstarf sem hefur aukið öryggi sjómanna og fækkað slysum um borð hjá viðskiptavinum okkar í sjávarútvegi. Við hlökkum til að vinna með skólanum áfram og halda nemendum og kennurum á floti í nýjum og góðum göllum,“ segir Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS.

Í tilkynningunni er bent á að flestir nemendur Slysavarnaskóla sjómanna séu starfandi á fiskiskipum og að samkvæmt lögum þurfa sjómenn bæði grunnmenntun og reglulega endurmenntun í öryggismálum og fer bókleg og verkleg kennsla fram um borð í skólaskipinu Sæbjörgu.

Sæbjörg, skólaskip Landsbjargar.
Sæbjörg, skólaskip Landsbjargar. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
mbl.is