Verðmæti eldisafurða þrefaldast

Fiskeldi er í sókn.
Fiskeldi er í sókn. mbl.is/Helgi Bjarnason

Útflutn­ings­verðmæti eldisaf­urða nam um 3,1 millj­arði króna í októ­ber. Það er mesta verðmæti í ein­um mánuði frá upp­hafi og um þreföld­un frá sama mánuði í fyrra. Þá bæði í krón­um talið og í er­lendri mynt.

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) fjalla um þró­un­ina á vef sín­um.

Rifjað er upp að í októ­ber hafi verið minni mun­ur á gengi krón­unn­ar á milli ára en verið hef­ur á öðrum mánuðum árs­ins. Gengi krónu hafi enda gefið eft­ir haustið 2018.

Komið í 20 millj­arða

„Á fyrstu 10 mánuðum árs­ins er út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða komið upp í rúma 19,9 millj­arða króna. Það er um 90% aukn­ing í krón­um talið á milli ára en rúm 70% að teknu til­liti til geng­isáhrifa,“ skrifa grein­end­ur SFS og rifja upp breyt­ing­ar á geng­inu.

„Gengi krón­unn­ar var að jafnaði 10% veik­ara á fyrstu 10 mánuðum árs­ins en á sama tíma­bili í fyrra. Er það stór­auk­in fram­leiðsla sem skýr­ir þessa aukn­ingu, sér í lagi á eld­islaxi. Þar af nam verðmæti lif­andi eld­islax, þar með talið seiða, rúm­lega 1,9 millj­arði króna á tíma­bil­inu sam­an­borið við tæpa 1,5 millj­arð á sama tíma­bili í fyrra. Er aukn­ing þar hátt í 30% á milli ára. Rím­ar þessi þróun afar vel við spá okk­ar um að verðmæti eldisaf­urða verði í kring­um 24 millj­arða króna í ár,“ sagði þar jafn­framt.

mbl.is