Lögreglan í Hong Kong beitti táragasi og piparúða á mótmælendur í dag. Fleiri þúsund svartklæddir mótmælendur mættu á götur úti og létu ófriðlega viku eftir kosningar í landinu. Þetta voru fyrstu kosningarnar eftir að mótmælin brustu út fyrir sex mánuðum.
Ríkisstjórn Hong Kong hlaut afhroð í kosningunum og eru lýðræðissinnar við stjórn í 17 af 18 héruðum sjálfsstjórnarborgarinnar. Þá var þátttaka í kosningunum sögulega há, en 71% íbúa greiddu atkvæði. Niðurstöður kosninganna eru jafnframt sagðar sýna mikinn stuðning við mótmælin.
„Stjórnvöld hlusta ekki ennþá á okkur og þess vegna höldum við áfram að mótmæla. Við ætlum ekki að stoppa. Það er erfitt að segja til um hvað gerist. Fólk er ennþá reitt og krefst breytinga,“ segir hin 20 ára háskólanemi sem gaf eingöngu upp fornafnið sitt Chen.
Mótmælin í dag voru friðsöm til að byrja með. Þegar lögreglan og öryggissveitir hindruðu framgöngu mótmælendanna skarst í brýni á milli þeirra.
Mótmælendur eru svekktir yfir skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart nýafstöðnum kosningum. Leiðtogi heimastjórnar Hong Kong, Carrie Lam, segir ríkisstjórnina ætla í alvarlega sjálfsskoðun eftir úrslit héraðskosninganna. En mótmælendum þykir skorta á aðgerðir.