Hin 22 ára gamla Emily Canham var lögð í mikið einelti í skólanum sínum. Hún hætti í skóla vegna eineltisins og byrjaði feril sinn á YouTube. Í dag er hún með yfir milljón fylgjendur á Youtube-rásinni sinni og þénar vel.
Canham hætti í skóla þegar hún var 17 ára og kláraði ekki prófin það árið. Hún hafði verið að prófa sig áfram með að taka upp myndbönd fyrir YouTube og ekki leið á löngu þar til myndbandagerðin varð að atvinnu hennar.
Árið 2016 komst hún á samning hjá snyrtivörufyrirtækinu L'Oréal og er enn þann dag í dag „brand ambassador“ fyrir merkið.
„Ég elska að vera fyrir framan myndavélina. Ég elska að kynna hluti. Ég ætla að vera á YouTube alla mína ævi; sama hvað ég tek mér fyrir hendur næst, þá verð ég alltaf á YouTube,“ sagði Canham í viðtali.
Hún fær vel greitt fyrir alla vinnuna sína á samfélagsmiðlum en hennar helstu tekjur koma í gegnum samstarf með fyrirtækjum. Canham er með umboðsmann sem heldur utan um öll samstarfsverkefni hennar, og segist hún ekki vita nákvæmlega hvað hún er með í árstekjur.
Tekjur áhrifavalda hafa aukist á síðustu árum, sérstaklega erlendis. Þá er mestan pening að fá úr því að gera YouTube-myndbönd og er það aðaltekjulind Canham. Árið 2014 fengu áhrifavaldar að meðaltali rúmar 50 þúsund krónur fyrir hvert myndband en árið 2019 eru það rúmar 830 þúsund krónur fyrir hvert myndband.
View this post on InstagramA post shared by Emily Canham🥰 (@emilycanham) on Dec 2, 2019 at 10:09am PST