Tvöföldun fiskeldis í Grindavík samþykkt

Samherji fiskeldi ehf. hefur fengið leyfi til þess að stækka …
Samherji fiskeldi ehf. hefur fengið leyfi til þess að stækka lax- og bleikjueldi sitt úr 1.600 tonnum í 3.000 tonn. Ljósmynd/Kristinn Benediktsson

Mat­væla­stofn­un (MAST) hef­ur veitt Sam­herja fisk­eldi ehf. rekstr­ar­leyfi til fisk­eld­is að Stað við Grinda­vík, að því er seg­ir í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni. Þar seg­ir að Sam­herji fisk­eldi hafi sótt um stækk­un á rekstr­ar­leyfi fyr­ir 3.000 tonna seiða- og mat­fisk­seldi á laxi og bleikju. Er það stækk­un upp á 1.400 tonn, en áður var fyr­ir­tækið með rekstr­ar­leyfi fyr­ir 1.600 tonna seiða- og mat­fisk­eldi á laxi og bleikju á sama stað.

Fyr­ir­huguð stækk­un virðist hafa legið fyr­ir um nokk­urt skeið þar sem áform Sam­herja fisk­eld­is voru til­kynnt til Skipu­lags­stofn­un­ar þann 20. mars 2014 og MAST tók við um­sókn um stækk­un rekstr­ar­leyf­is 20. des­em­ber 2017.

Fram kem­ur í grein­ar­gerð MAST að stofn­un­in „tel­ur ekki til­efni til að um­rædd fram­kvæmd fari í gegn­um mat á um­hverf­isáhrif­um þar sem hún er ekki lík­leg til þess að hafa í för með sér um­tals­verð um­hverf­isáhrif, þ.e. að hafa veru­lega óaft­ur­kræf um­hverf­isáhrif eða valda veru­leg­um spjöll­um á um­hverf­inu sem ekki er hægt að fyr­ir­byggja eða bæta úr með mót­vægisaðgerðum.“

Þá kem­ur einnig fram að eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust stofn­un­inni um fyr­ir­hugaða stækk­un.

mbl.is