Ein var flutt á slysadeild eftir að tveir bílar rákust saman á Vesturlandsvegi skammt frá gatnamótum Suðurlandsvegar í hádeginu.
Éljagangur, hálka og þungskýjað hefur verið á höfuðborgarsvæðinu í morgun og aðstæður til aksturs frekar slæmar.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru áverkar konunnar sem var flutt á slysadeild minniháttar.