Vegunum um Fjarðarheiði og um Fagradal hefur verið lokað vegna veðurs, en ekkert ferðaveður er á svæðunum að mati Vegagerðarinnar. Þá er einnig hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum á Austurlandi og eitthvað um skafrenning.
Ófært er bæði á Breiðdalsheiði og um Öxi.
Fagridalur: Veginum hefur verið lokað vegna veðurs. Ekkert ferðaveður er á svæðinu. #lokað #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) December 9, 2019
Fjarðarheiði: Veginum hefur verið lokað vegna veðurs. Ekkert ferðaveður er á svæðinu.#lokað #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) December 9, 2019
Búast má við því að fjölda vega um land allt verði lokað vegna ofsaveðursins á morgun. Nánari upplýsingar má finna á vef Vegagerðarinnar.