Getur bæst talsvert í sjávarhæð

Eigendur báta og skipa í höfnum eru beðnir um að …
Eigendur báta og skipa í höfnum eru beðnir um að huga að þeim þar sem sjávarstaða gæti hækkað umfram það sem eðlilegt er. mbl.is/RAX

Landhelgisgæslan hvetur eigendur og umsjónarmenn skipa og báta í höfnum til þess að huga að sérstaklega að þeim í ljósi veðurfarslegra aðstæðna, segir Ásgeri Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.

„Öldu og vindáhlaðandi ásamt lágum loftþrýstingi sem spáð er getur bætt talsvert á sjávarhæð í höfnum umfram það sem sjávarhæðartöflur gefa til kynna. Sérstaklega þar sem vindur stendur á land,“ segir hann.

Spurður hvort Landhelgisgæslan hafi gripið til einhverra sérstaka ráðstafanna vegna óveðursins, segir Ásgeir svo ekki vera. En hefðbundið viðbragð verður viðhaft. „Þór er á sjó og svo erum við með þyrlur til taks.“

mbl.is