Lögreglan á Suðurnesjum hvetur fólk til að halda sig heima við á morgun en spár gera ráð fyrir ofsaveðri. Appelsínugul viðvörun er í gildi fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra, Norðurland eystra og miðhálendið en viðvaranirnar taka gildi á morgun.
Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Suðurnesjum klukkan 13:00 á morgun. Fram kemur á vef Veðurstofunnar að víðtækar samgöngutruflanir séu líklegar, lokanir á vegum og ekkert ferðaveður á meðan viðvörun er í gildi.
Auk þess er nauðsynlegt að tryggja lausamuni til að fyrirbyggja foktjón.
„Spáin á morgun, 10. desember, lítur hreint út sagt ekki vel út. Þetta er ekkert ferðaveður svo við mælum eindregið með því að fólk verði heima við, jafnvel með rjúkandi kakóbolla og piparkökur,“ segir í færslu lögreglunnar á Suðurnesjum.
Enn fremur segir lögreglan að ómögulegt sé að segja til um hvort Reykjanesbrautinni verði lokað á morgun og hvenær þá. Fólk er hvatt til að fylgjast með veðurspám en bent er á að ferðalög í svona veðrum eru ekki talin æskileg.