„Ekkert annað í stöðunni“

Sólberg hefur verið komið í skjól undan Grænuhlíð í Ísafjarðardjúpi …
Sólberg hefur verið komið í skjól undan Grænuhlíð í Ísafjarðardjúpi ásamt þremur örðum fiskiskipum. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson

„Grænahlíðin er alltaf fín, gott að vera í vari þar. Þetta er bara einhverjir tuttugu til þrjátíu metrar í hviðum,“ segir Trausti Kristinsson, skipsstjóri skuttutogarans Sólbergs ÓF-001, um veðurfarið í samtali við 200mílur.

Sólberg hefur verið komið í skjól undan Grænuhlíð í Ísafjarðardjúpi ásamt þremur örðum fiskiskipum, þeim Kristrúnu RE-177, Baldvini Njálssyni GK-400 og Gnúpi GK-011. Þá er varðskipið Þór skammt undan.

„Það er náttúrulega skjól hérna,“ svarar Trausti um aðstæðurnar og segir skipið bíða eftir því að veðrið gangi niður enda sé „ekkert annað í stöðunni. Ætli það sé ekki hauga brim þarna úti. Við fórum einn hring þarna í gær upp úr klukkan þrjú og þá var vindurinn kominn í 25.“

mbl.is