Vegagerðin hefur gefið það út að mögulega þurfi að loka Sæbraut, frá Hörpu að Laugarnestanga, og Eiðsgranda á Seltjarnarnesi, vegna mikils ágangs sjávar á vegi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að gert sé ráð fyrir lokun þessara gatna frá kl. 15.
Á vef Vegagerðarinnar er farið yfir mögulegar lokanir á vegum á landinu í dag og á morgun vegna ofsaveðursins sem nú gengur inn á landið.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sagði í samtali við mbl.is í gærkvöld að við aðstæður eins og þær sem líklega skapast síðdegis í dag ýffist sjórinn upp í Kollafirði og aldan skylli á Sæbrautinni. Hásjávað verður um fimmleytið.
Einar sagðist búast við því að þari og grjót fylgdi öldunum inn á Sæbrautina.