Það hefur vafalaust ekki farið fram hjá neinum að veðurspár gera ráð fyrir aftakaveðri á öllu landinu í dag og fram á morgun. Það hefur að minnsta kosti ekki farið fram hjá íslenskum spéfuglum á Twitter sem hafa reytt af sér hvern brandarann á fætur öðrum á forritinu síðastliðinn sólarhring. Hér er brot af því besta.
Ég var að sækja mér app til að horfa á vonda veðrið.
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) December 10, 2019
Ó, þú ljúfa firring.
dagurinn í dag fer bara í undirbúning:
— Sóley Bergsteinsd. (@SoleyBergsteins) December 10, 2019
• kaupa í lasagna
• finna til ullarsokka
• downloada 2012, the day after tomorrow, into the storm
• biðja bænir
Ég elska ~ELSKA~ svona veður. Veit fátt skemmtilegra en að dúða mig upp og vaða snjó í kósý byl. Ég á mér fantasíu um að vera veðurtepptur í einhverjum skíðakofa.
— Bobby Breiðholt (@Breidholt) December 9, 2019
Á morgun verður höfuðborgin lokuð fyrir utanaðkomandi. Þá gefst tækifæri til þess að gera hluti sem sveitafólk þolir ekki. Ganga með trefil, drekka latté, hjóla og hlusta á tónlist sem er ekki spiluð á sveitaböllum. Get ekki beðið.
— Þorsteinn Guðmunds (@ThorsteinnGud) December 9, 2019
hehe hugur minn er hja þeim sem vakna eftir kl.15:00 hjá one night standinu sínu frá því í gær og eru fastir heima hja þeim utaf veðrinu hefur þessi verið sagður hérna áður?
— Daníel Ólafsson (@danielolafsson) December 10, 2019
Ég: HEYRIRU ÞETTA?
— María Björk (@baragrin) December 9, 2019
Mamma: nei?
Ég *búin að lesa 45 fréttir um ofsaveðrið á morgun*: NÁKVÆMLEGA ÞETTA ER LOGNIÐ Á UNDAN STORMINUM ÞÖGNIN Í VEÐRINU ER GJÖRSAMLEGA ÆRANDI
Mamma *að horfa á fb video*: mhm
Ég ætla rétt að vona að það sé búið að gera einhverjar ráðstafanir með jólaköttinn á lækjartorgi.
— Heiður Anna (@heiduranna) December 10, 2019
Ef ég fæ einn tölvupóst í viðbót frá Melaskóla, Austurbæjarskóla eða Skerjagarði um veðrið. Þá geng ég inn í norðanáttina.
— Halldór Halldórsson (@DNADORI) December 10, 2019
Ófærð season 4
— Halldór Halldórsson (@DNADORI) December 10, 2019
Pólski sendiherrann er myrtur af fagmanni. Borgin lokast útaf veðri. Andri verður að leysa málið í blindbyl og áður en því slotar. Dóttir hans skemmir fyrir og er glötuð every step of the way.
Your welcome.
Ég elska vont veður. Einu vonbrigðin eru að það er aldrei nógu vont. Veðurstofan hitar mann upp með einhverjum mislitum viðvörunum, segir manni að tjóðra niður lausamuni og halda börnunum heima og svo kemur bara smá rok.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) December 9, 2019
Það verður kannski vont veður á morgun. Samt ekki jafn vont veður og á Vesturlandsvegi í mars 2013.
— Andri Valur (@andrivalur) December 9, 2019
Þá var ekki búið að finna upp litakóðann en þetta var allavega eldrautt veður. pic.twitter.com/M8a4wLHrv3
Þá eru þau Landsbjörg að fara ræsa veðurvélarnar í tæka tíð fyrir fjáröflunartímabilið pic.twitter.com/HjJfb1sHG1
— Gunnar nokkur (@gunnare) December 9, 2019