Björgunarfélag Vestmannaeyja hefur sinnt hátt í 50 útköllum það sem af er kvöldi. Samkvæmt varðstjóra lögreglunnar í Vestmannaeyjum hafa útköllin þó flest verið minni háttar.
„Það er búið að vera talsvert af óveðursútköllum en ekkert alvarlegt. Þakplötur hafa losnað og ruslatunnur fokið,“ segir Huginn Egilsson varðstjóri.
Þá hefur verið lokað fyrir alla umferð út á Eiði þar sem veður er einstaklega slæmt. „Björgunarsveitin mat það þannig að það væri bara ekki stætt að sinna verkefnum þar vegna veðurs.“
Að sögn Hugins skall óveðrið á á sjötta tímanum og versnaði hratt. „Hann er aðeins að snúa sér núna vindurinn. Þessi norðvestanátt sem var er að snúa sér í norðanátt og hún er skárri. En það er enn þá vitlaust veður.“
Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands hefur mesti vindur á landinu í dag mælst á Stórhöfða í Vestmannaeyjum, 39,6 metrar á sekúndu.