Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa staðið í ströngu frá því í gær við að tryggja að sem minnst foktjón verði af völdum aftakaveðurs sem gengur yfir landið í dag og á morgun.
„Það þarf að tryggja að hlutirnir fjúki ekki, þar á meðal kisinn okkar á Lækjartorgi. Ekki síst vegna þess að spár gera ráð fyrir því að þetta verði verst í miðborginni og í vesturhluta borgarinnar,“ segir Bjarni Brynjólfsson, upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborgar, í samtali við mbl.is.
Í morgun var jólakötturinn á Lækjartorgi bundinn við steypuklump líkt og sjá má á myndskeiði sem Stundin birti. Þá hafa stóru jólabjöllurnar sem skreyta götur miðborgarinnar verið teknar niður sem og Óslóartréð sem mun liggja af sér storminn.
Um fyrirbyggjandi aðgerðir er að ræða, ekki síst þar sem Óslóartréð brotnaði í óveðri um svipað leyti fyrir fjórum árum.
Teymi frá hverfastöð við Fiskislóð verður á vakt fram eftir degi og verður til taks ef eigur borgarinnar liggja undir skemmdum.
Búist er við því að veður taki að versna á höfuðborgarsvæðinu síðdegis. Veðurspár virðast ætla að ganga eftir og stefnir í eitt versta óveður á landinu á síðari árum, að því er segir í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Appelsínugul viðvörun er í gildi á öllu landinu nema á Ströndum og norðurlandi vestra þar sem rauð viðvörun er í gildi.
Bjarni segir að frekar fámennt sé á starfstöðvum borgarinnar þennan morguninn. „Fólk var hvatt til að vinna frekar heima.“ Reykjavíkurborg hefur beðið foreldra og forráðamenn barna að sækja börn sína strax að skóladegi loknum á morgun svo að allir, börn, foreldrar og starfsfólk skóla og leikskóla, geti verið komnir til síns heima áður en óveðrið skellur á klukkan 15.