Neyðarstjórn Mílu hefur ákveðið að lýsa yfir óvissustigi vegna aftakaveðursins sem nú gengur yfir landið.
Víðtækar rafmagnstruflanir og óvissa um hvenær rafmagn verður komið á að nýju gerir að verkum að líklegt er að truflanir og útföll verði á fjarskiptum þegar á líður.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu.