Tvísýnt verður með akstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu eftir klukkan 15:00 í dag. Fylgst verður náið með veðri og Strætó mun senda út frekari upplýsingar eftir hádegi.
Þetta kemur fram á Twitter-síðu Strætó en appelsínugul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan 15:00 í dag.
Tvísýnt verður með akstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu um kl. 15:00 í dag. Fylgst verður náið með veðri og frekari upplýsingar verða sendar út eftir hádegi í dag.
— Strætó (@straetobs) December 10, 2019
Enn fremur kemur fram á Twitter-síðunni að akstursþjónusta fatlaðra mun hætta akstri klukkan 15:00 í dag.
Akstursþjónusta fatlaðs fólks mun hætta akstri kl. 15:00 í dag, 10. desember.
— Strætó (@straetobs) December 10, 2019