Upplýsingatæknifyrirtækið Advania hefur komið upp beinu streymi frá Sæbraut þar sem hægt verður að fylgjast með lægðinni fara yfir. Gert er ráð fyrir að loka þurfi Sæbraut að hluta vegna mikils ágangs sjávar á vegi.
Veðursíðan Severe Weather Europe lýsir aftakaveðrinu sem „bombogenesis cyclone“, eða „sprengilægð“.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sagði í samtali við mbl.is í gærkvöld að við aðstæður eins og þær sem líklega skapast síðdegis í dag ýfðist sjórinn upp í Kollafirði og aldan skylli á Sæbrautinni.
Svona lagað gerist ekki oft, en gerðist líklega síðast í „Höfðatorgsveðrinu“ 2. nóvember 2012, að sögn Einars.
Samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð hefur verið virkjuð og hefur ríkislögreglustjóri lýstr yfir óvissustigi á landinu vegna aftakaveðurs. Fólk er vinsamlegast beðið að halda sig innan dyra eftir klukkan 15.
Hægt er að fylgjast með lægðinni á ýmsa vegu, til að mynda á vefmyndavélum Vegagerðarinnar og Mílu.
Einnig er hægt að sjá ferðir lægðarinnar á gagnvirku korti Windy: