„Þetta er allt á áætlun og stóra myndin í dag hefur ekkert breyst,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is. Appelsínugul viðvörun verður í gildi í öllum landshlutum vegna veðurs síðar í dag nema á Norðurlandi vestra og Ströndum þar sem rauð viðvörun mun gilda frá klukkan fimm.
„Það er farið að hvessa mjög og snjóa við norðurströndina og á utanverðum Vestfjörðum,“ segir Elín en Vestfirðir og Strandir finna fyrst fyrir veðrinu.
Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, veginum um Hálfdán og Mikladal og Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði hefur verið lokað vegna veðurs. Þá er ófært norður í Árneshrepp og um Gemlufallsheiði þar sem hviður fara í 43 m/s.
Elín segir að það fari að hvessa á vestast á höfuðborgarsvæðinu milli klukkan eitt og þrjú í dag. „Það er þá Vesturbærinn, Seltjarnarnes, miðbærinn og líklega Vellirnir í Hafnarfirði og Reykjanesbrautin. Um klukkan fimm verður veðrið orðið ansi slæmt á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Elín en appelsínugul viðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan þrjú:
„Appelsínugula viðvörunin gildir frá því klukkan þrjú og við breytum því ekki.“