„Það hjálpar gríðarlega mikið til að almenningur hefur tekið tillit til þessa veðurs og er ekki á ferðinni,“ segir Rögnvaldur Ólafsson, lögreglufulltrúi hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og forsvarsmaður samhæfingarstöðvarinnar í Skógarhlið, í samtali við mbl.is.
Rögnvaldur segir stöðuna góða miðað við aðstæður, enda hafi allur undirbúningur viðbragðsaðila verið til fyrirmyndar, auk þess sem forvirkar lokanir Vegagerðarinnar hafi náð tilætluðum árangri.
„Helsti óvissuþátturinn í þessu er rafmagnsleysið,“ segir Rögnvaldur. Rafmagnsleysi hefur haft hvað mest áhrif í Skagafirði og á Kópaskeri, en sums staðar hafi tekist að koma rafmagni aftur á með varaafli.
Þá eru fjarskipti alls staðar komin í lag, þótt þau séu víða keyrð á varaafli. „Þetta eru svolítið margir staðir sem eru keyrðir á varaafli og það náttúrulega dugar ekki endalaust. Einhver af þeim byrja mögulega að detta út í nótt ef það kemst ekkert rafmagn inn á svæðið í millitíðinni.“
„Við erum enn þá að fylgjast með ástandi og horfum. Spáin virðist vera að ganga eftir og virðist nú þegar vera byrjuð að ganga niður á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnum er eitthvað að fækka hjá björgunarsveitum í flestum landshlutum nema kannski á Suðurnesjum,“ segir Rögnvaldur.