Allt er á kafi í snjó á Akureyri eftir óveðrið sem hefur gengið yfir landið. Meðfylgjandi ljósmyndir sem fréttaritarinn Þorgeir Baldursson tók í dag lýsa ástandinu ágætlega.
Fólk hefur þurft að grafa sig út úr húsum sínum, auk þess sem samgöngur eru í lamasessi í bænum.