Mikið tjón varð á fiskimjölsverksmiðju Ísfélags Vestmannaeyja í aftakaveðrinu í gærkvöldi og nótt þegar klæðning fór af norðurhlið hússins. Klæðning fór sömuleiðis af salthúsinu hjá Vinnslustöðinni.
„Það er ennþá bálhvasst hjá okkur og fólk er varað við því að vera á ferðinni,“ segir Tryggvi Kr. Ólafsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum, í samtali við mbl.is. Skólahaldi hefur verið frestað til klukkan 10 og fyrstu tvær ferðir Herjólfs falla niður en athuga á með ferð frá Vestmannaeyjum klukkan 12. „Það á að lægja upp úr hádegi, annars getur þessi norðanátt hangið ansi lengi yfir okkur, það er reynslan,“ segir Tryggvi.
Björgunarfélag Vestmannaeyja hefur sinnt rúmlega 100 útköllum frá því um fjögurleytið í gær og eru viðbragðsaðilar enn að störfum að sögn Arnórs Arnórssonar, formanns Björgunarfélags Vestmannaeyja. „En ég hef fulla trú á því að þetta fari að klárast,“ segir hann. Um 40 manns hafa sinnt útköllunum sem eru fyrst og fremst vegna foktjóns á hafnarsvæðinu.
„Það var ein trilla sem fékk mikinn sjó inn á sig sem við dældum upp úr. En þetta er búið að vera ótrúlega rólegt þar miðað við veður,“ segir Arnór.
Meðalvindur við Stórhöfða fór mest upp í 40 metra á sekúndu og hviður allt upp í 52 metra á sekúndu í gærkvöldi. Tryggvi segir að þótt allt hafi farið vel og engin slys orðið á fólki hafi veðrið verið verra en búist var við fyrirfram. „Þetta var svolítill hvellur.“