Þrjú snjóflóð hafa fallið í dag samkvæmt upplýsingum frá ofanflóðavakt Veðurstofunnar, tvö í Súðavíkurhlíð og eitt í Langadal. Ófært er á svæðunum og því er ekki talin hætta á að nokkur hafi lent í flóðinu.
„Við reiknum fastlega við að það hafi fallið fleiri flóð,“ segir Magni Hreinn Jónsson, sérfræðingur á ofanflóðavakt Veðurstofunnar. Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Mið-Norðurlandi er enn í gildi og verður fram eftir degi.
Snjóflóð féll á þjóðveginn í Langadal í Húnavatnssýslu norðan við brúna yfir Svartá í morgun. Flóðið er um fimmtíu metra breitt og tveggja metra djúpt. Tvö flóð féllu á veginn við Súðavíkurhlíð og voru þau svipað stór og flóðið í Langadal.
Ekki verður gripið til sérstakra aðgerða vegna flóðanna að svo stöddu.