Starfsmönnum Landsnets tókst í nótt að hreinsa tengivirkið í Hrútatungu. Í kjölfarið var tengivirkið spennusett og rafmagn komst á Vesturlínu til Mjólkárvirkjunar. Sauðárskrókslína er einnig komin í lag líkt og greint var frá í morgun.
Notendur á Norðvesturlandi fá nú rafmagn frá flutningskerfinu en notendur á norðanverðum Vestfjörðum fá enn rafmagn í gegnum varaafl.
Breiðdalslína 1, sem tengir flutningskerfið við norðanverða Vestfirði við Mjólká er enn þá úti. Skoðun á stöðu línunnar er í gangi.
Þá er efni í viðgerð á stæðum í Dalvíkurlínu á leiðinni norður og fram undan er að fara í viðgerðir á línunni, að því er segir í Facebook-færslu Landsnets. Varðskipið Þór er nú á leið frá Siglufirði til Dalvíkur þar sem til stendur að nýta skipið sem rafstöð fyrir bæinn á meðan beðið er eftir því að viðgerð geti hafist.
Vinnuflokkar eru í hvíld eftir átök næturinnar á meðan efnið er á leiðinni en viðgerðir hefjast strax upp hádegi.
Þá verður flogið yfir Kópaskerslínu með Landhelgisgæslunni fyrir hádegi til að meta tjón. Tilraunir til að spennusetja Kópaskerslínu 1 frá Þeistareykjum hafa ekki borið árangur. Búið var að aftengja þann hluta línunnar frá Silfurstjörnu að Kópaskeri þar sem vitað var um bilun á línunni. Spennusetning gekk ekki og því líklegt að um frekari bilun sé að ræða. Þar eru margir staurar brotnir og líkt og víða annars staðar er ísing og selta á línum.