Rafstrengur var sendur með Hercules-flugvél danska flughersins fer í varðskipið Þór sem til stendur að nýta sem rafstöð fyrir Dalvíkurbæ. Skipið liggur þar í höfn. Tæknimenn eru að störfum í varðskipinu og vinna að því að koma rafmagninu í land eins og meðfylgjandi myndir sýna.
Þetta verður í fyrsta sinn sem varðskipið Þór er nýtt sem hreyfanleg aflstöð. Þór getur flutt 2MW af rafmagni í land en það er nóg til þess að halda meðalstóru sveitarfélagi gangandi í neyðartilvikum. Sérfræðingur skipatæknisviðs Landhelgisgæslunnar er á leið til Dalvíkur þar sem hann aðstoðar við tenginguna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.