Bátur sökk í Hofsóshöfn á miðvikudagsmorgun í óveðrinu sem gekk yfir landið.
„Hann yfir-ísaðist. Það var annar tæpur líka. Við náðum að berja á honum áður en hann fór líka,“ segir Elvar Jóhannsson, formaður björgunarsveitarinnar Grettis.
Spurður segir hann að svona geti gerst í veðri eins og hefur verið undanfarið. „En þetta hefur ekki skeð í mörg ár í Hofsósi. Ég man ekki til þess.“
Björgunarsveitin hefur haft í nógu að snúast, eins og svo margar aðrar á landinu síðustu sólarhringa. Hún hefur unnið með björgunarsveitunum á Sauðárkróki og Varmahlíð, með aðgerðastjórn á Sauðárkróki, við að leysa hin ýmsu verkefni.