Í nótt náðist að koma á rafmagni á Dalvík en það er framleitt í varðskipinu Þór sem nú liggur þar við bryggju. Rafmagnið kom á eftir miðnætti í gær en þetta er í fyrsta skiptið sem varðskip er tengt svona við rafmagnskerfi í landi. Ómar Þór Júlíusson, yfirvélstjóri á Þór, segir við mbl.is að þurft hafi að gera þó nokkrar tilraunir og prófa ýmislegt áður en ætlunarverkið tókst.
Án þess að fara í tæknileg smáatriði segir Ómar verkið flóknara en það var kynnt og sýnt Landhelgisgæslunni hjá framleiðandanum í Síle á sínum tíma. „Þetta var ekki eins einfalt og það átti að vera eða hljómaði,“ segir hann.
Hins vegar kalli þetta ekki á að skipta út neinum búnaði eða tækjum. „Þetta er frekar bara að fínpússa hlutina,“ segir hann og bætir við að þessi tæknilegu mál verði yfirfarin í næsta stoppi skipsins. Þá hafi þetta verið góð lærdómskúrfa og segir hann að mun einfaldara ætti að vera að tengja skipið við landtengingu ef aftur komi til svipaðs ástands.
Á heildina litið segist hann hins vegar mjög ánægður og sáttur með hvernig til tókst í gær og nótt.
Samkvæmt því sem Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, sagði við mbl.is fyrr í dag eru líkur á að viðgerð Dalvíkurlínu og að koma á varanlegu rafmagnssambandi við bæinn, geti tekið tímann fram yfir helgi.
Spurður út í þennan tímaramma segir Ómar að ekki sé enn komið í ljós fullkomlega hvað þeir verði lengi. „Verðum hér eins og þarf,“ segir hann að lokum.