Verkefni björgunarsveita í Skagafirði hafa verið mörg í kjölfar óveðurs og rafmagnsleysis síðustu daga. Félagar út björgunarsveitinni Gretti hafa sinnt verkefnum í Tindastóli, Sauðárkróki, Viðvíkursveit, Hjaltadal, Hofsósi, Unadal, Höfðaströnd, Sléttuhlíð og Fljótum þar sem þeir grófu meðal annars kindur upp úr fönn.
„Björgunarsveitin fór í að grafa upp á tveimur bæjum en það er örugglega víðar,“ segir Ingimundur Ingvarsson í svæðisstjórn björgunarsveita Skagafjarðar.
Auk þess var hænum bjargað en þær voru í kofa sem var kominn á bólakaf í snjónum.
„Það var grafið upp á tveimur stöðum, björgunarsveitir komu eitthvað að því en bændur björguðu sér einnig með öðrum leiðum enda vorum við mikið í öðrum verkefnum,“ segir Ingimundur.
Hann segir að dýrin sem hafi verið komin í fönn hafi eingöngu verið kindur og að þeim hafi verið bjargað.