Pilturinn sem féll í Núpá í Eyjafirði og leitað hefur verið frá því tilkynning barst á miðvikudagskvöld heitir Leif Magnus Grétarsson Thisland.
Hann er 16 ára gamall og til heimilis í Vestmannaeyjum, fæddur í Noregi árið 2003. Leit heldur áfram.
Leif féll í Núpá í Sölvadal er hann var að aðstoða bónda við stíflu í ánni þegar krapagusa hreif hann með sér. Björgunarsveitir, lögregla og Landhelgisgæslan eru meðal þeirra sem taka þátt í leitinni.