TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var nú á tólfta tímanum send til leitar í Sölvadal. Þyrlan tók á loft frá Akureyrarflugvelli klukkan 11:16. Fjögurra manna áhöfn er um borð sem og björgunarsveitarmaður á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Áhöfn þyrlunnar kannar sömuleiðis aðstæður á svæðinu úr lofti ásamt því að taka þátt í leitinni. TF-LIF hefur verið til taks á Akureyri undanfarinn sólarhring.