Leitin að drengnum sem féll í Núpá í Sölvadal á miðvikudagskvöld er að hefjast af fullum þunga á ný eftir að dregið var úr leit í nótt og áin vöktuð.
Um 200 leitarmenn og á þriðja tug tækja verða við leit í dag og verður áhersla lögð á að leita frá slysstað og niður að Stekkjaflötum með leitarmönnum, auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar verður notuð ásamt dróna frá sérsveit ríkislögreglustjóra og björgunarsveitum.
Kafarar frá sérsveit ríkislögreglustjóra, slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og Landhelgisgæslunni hafa ekki náð að kafa í ánni en unnu við sérhæfða leit í gær. Ekki er fyrirhugað að leita með köfurum í ánni vegna mikillar hættu á krapaflóði.
Í dag verður leitað á þrettán leitarsvæðum. Mikill kuldi er á svæðinu en veðurspá er þó hagstæðari fyrir daginn í dag en verið hefur. Leitarskilyrði eru þó mjög erfið vegna kulda og krapa í ánni.
Leitarhópar lögðu af stað frá Akureyri klukkan 9 í morgun og verður leitað fram á kvöld. Vettvangsstjórn lögreglu og björgunarsveita er við félagsheimilið Sólgarð þaðan sem björgunarmenn fá úthlutað verkefnum.