Síðan tóku Íslendingar við

Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarformaður Samherja, Þorsteinn Már Baldvinsson og fleiri …
Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarformaður Samherja, Þorsteinn Már Baldvinsson og fleiri stjórnendur Samherja. mbl.is/​Hari

Fjallað er um namibískan sjávarútveg í norska sjávarútvegsblaðinu Fiskeribladet í dag. Þar er fjallað um stuðning Norðmanna við namibísk yfirvöld á árunum 1990 til 2005 og síðan hafi Íslendingar tekið við. Greinin fjallar um umsvif Samherja í Namibíu.

Þar kom fram að deild innan utanríkisráðuneytisins, Norad, hafi stýrt aðstoð Norðmanna á þessum árum. Þetta starf hafi ítrekað verið umfjöllunarefni um hversu vel hafi verið staðið að því. 

Namibía varð sjálfstætt ríki árið 1990 og þangað til hafi ýmsar þjóðir nýtt sér gjöful fiskimið landsins. Formaður Swapo, Sam Nujoma, hafi skrifað forsætisráðherra Noregs, Gro Harlem Brundtland, bréf og óskað eftir aðstoð Noregs í sjávarútveginum. Það hafi gengið eftir en síðan hafi Íslendingarnir komið tekið við með þessum árangri.

Hér er hægt að lesa umfjöllun Fiskeribladet

mbl.is