Hafna því að hafa látið Landsnet bíða

Sveitarfélagið Skagafjörður hafnar ásökunum forstjóra Landsnets um að hafa látið …
Sveitarfélagið Skagafjörður hafnar ásökunum forstjóra Landsnets um að hafa látið Landsnet bíða lengi eftir leyfum til lagningar Sauðárkrókslínu 2. Ljósmynd/Birgir Bragason

Sveitarfélagið Skagafjörður vísar ásökunum Guðmundar Inga Ásmundssonar forstjóra Landsnets um drátt á veitingu leyfa vegna Sauðárkrókslínu 2 til föðurhúsanna, en rætt var við forstjórann í umræðuþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í gær. Hann sagði þar að sveitarfélagið hefði látið Landsnet bíða í tvö og hálft ár eftir leyfi til þess að hefja framkvæmdir.

Sauðárkrókslína 2 er fyrirhugaður jarðstrengur sem mun liggja frá spennivirki í Varmahlíð til Sauðárkrók og hefði leyst stóran hluta þeirra rafmagnsvandamála sem upp koun í Skagafirði í óveðrinu í síðustu viku. 

Þessu harðneitar bæjaryfirvöld í Skagafirði. „Hið rétta er að Sauðárkrókslína 2 hefur verið inni á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar síðan sveitarstjórn samþykkti aðalskipulag fyrir tímabilið 2009-2021, þann 17. desember árið 2009. Það skipulag var staðfest 25. maí 2012 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda 11. júní 2012,“ segir í færslu á vef sveitarfélagsins í dag, en þar segir einnig að þrátt fyrir þetta hafi Landsnet ekki hafið undirbúning framkvæmda fyrr en árið 2017, meira en sjö árum eftir samþykki sveitarstjórnarinnar á aðalskipulaginu.

Fram kemur í færslu sveitarfélagsins að í janúar árið 2017 hafi Landsnet svo óskað eftir breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna áforma Landsnets um breytta legu á hluta strengsins.

„Sveitarfélagið Skagafjörður lagði til við Landsnet í kjölfarið að fyrirtækið myndi tvískipta framkvæmdinni og hefjast strax handa við þann hluta strengsins sem hafði verið samþykktur í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 á meðan unnið væri að breytingum á aðalskipulagi. Svar Landsnets var að þeir vildu bjóða verkið út sem eina heild. Landsnet hefði hins vegar þá þegar getað hafist handa við framkvæmdir u.þ.b. helmings leiðarinnar,“ segir í færslu sveitarfélagsins, sem hafnar sem áður segir ásökunum forstjóra Landsnets um að hafa látið Landsnet bíða.

„Landsneti hefði verið í lófa lagið að hefja framkvæmdir við lagningu línunnar fyrir mörgum árum síðan,“ segir sveitarfélagið.

mbl.is