Tvöfalda eldi í stöðinni sem brann

Ný eldisstöð verður reist á grunni þeirrar sem brann og …
Ný eldisstöð verður reist á grunni þeirrar sem brann og er lagt til að eldið fái leyfi til þess að tvöfalda framleiðsluna. mbl.is/Sigmundur G. Sigurgeirsson

Mat­væla­stofn­un hef­ur unnið til­lögu að rekstr­ar­leyfi fyr­ir Sam­herja fisk­eldi ehf. vegna fisk­eld­is á landi að Núp­um í Ölfusi. Um er að ræða stækk­un á eldra rekstr­ar­leyfi úr 150 tonna seiðaeldi af laxi og bleikju í 300 tonna seiðaeldi af laxi og bleikju, seg­ir í til­kynn­ingu frá MAST.

Þá seg­ir í um­sögn skipu­lags­stofn­un­ar að fyr­ir­huguð fram­kvæmd sé ekki lík­leg til að hafa í för með sér um­tals­verð um­hverf­isáhrif og því fram­kvæmd­in ekki háð mati á um­hverf­isáhrif­um.

Á grunni húss­ins sem brann

Áætlað er að reisa nýtt eld­is­hús á grunni eldra húss sem brann og verður nýja húsið um 20 metr­um lengra og gólf­flöt­ur stækk­ar um 260 fer­metra.

Um þrjá­tíu slökkviliðsmenn börðust við eld í fisk­eld­is­stöðinni aðfar­arnótt 27. júní 2018. Það var ná­granni sem til­kynnti um reyk og eld í hús­inu. Slökkviliðinu tókst að koma í veg fyr­ir að eld­ur­inn breidd­ist út í nær­liggj­andi hús og var all­an tím­ann bund­inn við eina bygg­ingu. Þak henn­ar hrundi að hluta.

Við rann­sókn kom í ljós að upp­tök elds­ins mátti rekja til raf­mótors við fóður­gjafa­búnað og var hluti búnaðar­ins hald­lagður til frek­ari rann­sókn­ar hjá sér­fræðingi Mann­virkja­stofn­un­ar.

Tölu­vert tjón fylgdi brun­an­um og sendi Sjóvá-Al­menn­ar trygg­ing­ar út af­komu­viðvör­un meðal ann­ars vegna brun­ans. Var til­kynn­ing­in einnig sögð tengj­ast öðrum stór­um bruna árið 2018, en það var brun­inn í hús­næði í Miðhrauni í Garðabæ. Sjóvá gerði ráð fyr­ir 97% sam­settu hlut­falli á öðrum árs­fjórðungi og 96% fyr­ir árið 2018.

mbl.is