Öryggi íbúa á stóru svæði ógnað

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar bendir á að á stórum hluta landsins var …
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar bendir á að á stórum hluta landsins var öryggi íbúa raunverulega ógnað og hefði víða geta farið illa ef ekki hefði verið fyrir elju og óeigingirni björgunarsveitaraðila og annarra sjálfboðaliða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar harmar að opinberir innviðir hafi brugðist í ofsaveðrinu í síðustu viku. Þetta kemur fram í ályktun sveitarstjórnarinnar sem samþykkt var samhljóða á fundi í gær.  

Í ályktuninni segir að ljóst er að nútímasamfélag er háð raforku í nánast öllu daglegu starfi og er því óásættanlegt að kerfið sé ekki öruggara en svo að veður geti haft svo víðtæk áhrif sem raun ber vitni. 

„Á stórum svæðum höfðu íbúar ekki aðgang að rafmagni, heitu vatni, útvarpi, alneti né síma og þannig hvorki með upplýsingar um stöðu mála eða leiðir til að kalla eftir aðstoð í neyð,“ segir í ályktuninni. Sveitarstjórnin bendir á að á stórum hluta landsins var öryggi íbúa raunverulega ógnað og hefði víða geta farið illa ef ekki hefði verið fyrir elju og óeigingirni björgunarsveitaraðila og annarra sjálfboðaliða.

„Öryggi íbúa, hvar svo sem þeir búa, þarf að vera forgangsmál þjóðarinnar,“ segir jafnframt í ályktuninni. 

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur Alþingi munnlega skýrslu um afleiðingar óveðursins og viðbrögð stjórnvalda á þingfundi eftir hádegi í dag.

mbl.is