12 staurar af 28 komnir upp

Starfsmenn RARIK að störfum á Skaga.
Starfsmenn RARIK að störfum á Skaga. Ljósmynd/Rósant Guðmundsson

Um 20 manns hafa unnið að viðgerð á Kópaskerslínu 1 og hafa 12 staurar af 28 verið reistir. Til stóð að nokkrir bættust í viðgerðarteymið í gær en vegna bilunar á Fljótsdalslínu 4 gat það ekki orðið. Áætlað er að vinnu við línuna verði lokið um komandi helgi. Þetta kemur fram í yfirliti frá Landsneti um stöðuna í rafmagnsmálum á landinu.

Tengivirkið í Hrútatungu

Tengivirkið hefur verið í rekstri frá því á mánudagsmorgun. Við erum enn á svæðinu. Hugsanlega þarf að aftengja eða skipta um einn skilrofa í virkinu sem grunur leikur á að hafi skemmst í veðurofsanum um daginn.

Dalvíkurlína 1

Þrátt fyrir erfiðar veðuraðstæður fór verkið langt í gær. Gerum enn ráð fyrir því að línan fari í rekstur eftir viðgerð á morgun.

Húsavíkurlína 1

Viðgerð á línunni lauk í gær og fór hún aftur í rekstur í gærkvöldi.


Laxárlína 1

Beðið verður með viðgerð um sinn meðan unnið er við lagfæringar á öðrum línum.


Fljótsdalslína 4

Bilun kom upp í Fljótsdalslínu 4 um miðjan dag. Í ljós kom að festing sem tengir skálakeðju við afspennt mastur nr. 67 hafði brotnað og liggur því einn fasinn niðri. Viðgerðarteymi er komið á staðinn ásamt tækjum sem komu frá Dalvíkurlínu. Viðgerð er í undirbúningi og mun hefjast í nú í morgunsárið. Ísingarvöktun verður höfð á Fljótsdalslínu 3 á meðan ástandið varir, en óvíst er hvað viðgerð tekur langan tíma.


Tengivirkið Reykjanesi

Í gær kom í ljós að mikil selta hafði safnast á eldingarvara og gegnumtök við tengivirkið og hætta á skemmdum á búnaði. Því var tekin ákvörðun um að taka Reykjaneslínu og Reykjanesvirkjun úr rekstri á meðan búnaður var hreinsaður. Verkið tók nokkrar klst.



mbl.is