Þakið fauk en annað í húsinu óskemmt

Betur virðist hafa farið en útlit var fyrir þegar þakið …
Betur virðist hafa farið en útlit var fyrir þegar þakið fauk af skála Ferðafélags Íslands á Valgeirsstöðum í Norðurfirði í Ströndum í óveðrinu í síðustu viku

Betur virðist hafa farið en útlit var fyrir þegar þakið fauk af skála Ferðafélags Íslands á Valgeirsstöðum í Norðurfirði í Ströndum í óveðrinu í síðustu viku. Þekjan af viðbyggingu vestan við húsið fór af, en milliloft er óskemmt.

Allt innandyra er óbrotið og snjór og raki hafa ekki komist inn, en óttast var í fyrstu að flest í húsinu hefði skemmst í þessari gjörningahríð.

Ágætlega tryggt

„Okkur er létt að vita að skemmdir séu ekki meiri og að milliloftið hafi ekki farið. Eigi að síður er þetta verulegt tjón og þá er bót í máli að við erum ágætlega tryggð. Núna hefur aðeins hlýnað fyrir norðan svo raki nær inn í húsið og því höfum við áhyggjur af,“ segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍ, í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: