Óveðrið sem geisaði á landinu öllu í síðustu viku setti strik í reikninginn hjá starfsfólki Íslandspósts sem hefur í nógu að snúast í desembermánuði.
„Það varð til þess að við urðum svolítið eftir á en við erum búin að ná því upp núna og gengur alveg ljómandi vel þrátt fyrir mikið magn í pípunum,“ segir Halla Garðarsdóttir, forstöðumaður póstmiðstöðvar Íslandspósts.
Guðrún Birta Pétursdóttir (t.v.) og Sara Dís Rúnarsdóttir (t.h.) höfðu því í nógu að snúast þegar ljósmyndari leit við í gær.