5 Hugmyndir að hátíðarförðun

Þegar hátíð ber að garði þýðir kallar það á meiri ljóma, aukið glimmer og varalit. Á Instagram er slík förðun þó daglegt brauð og gaman að fylgjast með förðunarfræðingum stjarnanna sýna hæfileika sína þar. Hung Vanngo og Patrick Ta eru á meðal vinsælustu förðunarfræðinganna í bransanum og tilvalið að sækja innblástur fyrir hátíðarförðunina til þeirra, þar sem glamúrinn ræður ríkjum.

1. Vínrauður þokki

Vínrauðar varir eru klassískar og það er eitthvað sérlega þokkafullt við þær. Patrick Ta farðaði leikkonuna Shay Mitchell með vínrauðum og hlýjum tónum sem passa líka fullkomlega við gull eyrnalokkana.

Förðun eftir Patrick Ta á leikkonunni Shay Mitchell.
Förðun eftir Patrick Ta á leikkonunni Shay Mitchell.

Endurskapaðu förðunina með þessum vörum:

Lancôme Color Design Eyeshadow Palette (Terre De Sienne).
Lancôme Color Design Eyeshadow Palette (Terre De Sienne).
Shiseido Modern Matte Powder Lipstick (Velvet Rope).
Shiseido Modern Matte Powder Lipstick (Velvet Rope).
Bare Minerals Gen Nude Powder Blush (Pink Me Up).
Bare Minerals Gen Nude Powder Blush (Pink Me Up).

2. Ferskjulituð fágun
Vinsælt er að nota svipaðan litatón á augu, varir og kinnar. Hér farðar Hung Vanngo ofurfyrirsætuna Rosie Huntington-Whiteley með ferskjulituðum tónum og notar brúnan augnblýant til að ramma inn augun. Með því að nota brúnan augnblýant en ekki svartan þá er ásýndin mýkri. Þessir litir fara ljósri húð Rosie sérlega vel og veita aukna hlýju í andlitið.

Förðun eftir Hung Vanngo á fyrirsætunni Rosie Huntington-Whiteley.
Förðun eftir Hung Vanngo á fyrirsætunni Rosie Huntington-Whiteley.

Endurskapaðu förðunina með þessum vörum:

Shiseido Lacquerink Lip Shine (311 Vinyl Nude).
Shiseido Lacquerink Lip Shine (311 Vinyl Nude).
ILIA Color Haze Multi-Use Pigment (Temptation).
ILIA Color Haze Multi-Use Pigment (Temptation).
Urban Decay Eyeshadow (Copper).
Urban Decay Eyeshadow (Copper).
Guerlain Terracotta Skin Highlighting Stick.
Guerlain Terracotta Skin Highlighting Stick.

3. Hlýir tónar og ljómi

Candice Swanepoel kemur frá Suður-Afríku og er ein af englum Victoria’s Secret en hún þykir með eindæmum glæsileg. Bjartur rauður varalitur er hér í aðalhlutverki samhliða ljómandi og sólkysstri húðinni. Förðunarfræðingurinn Patrick Ta er einmitt þekktur fyrir ljóma í förðunum sínum. Yfirleitt er augnförðun haldið í lágmarki ef áberandi litur er á vörunum en hlýr og rauður varaliturinn dregur fram blá augu fyrirsætunnar.

Förðun eftir Patrick Ta á fyrirsætunni Candice Swanepoel.
Förðun eftir Patrick Ta á fyrirsætunni Candice Swanepoel.

Endurskapaðu förðunina með þessum vörum:

Sensai Glowing Base.
Sensai Glowing Base.
Guerlain Terracotta Light Powder (03 Natural Warm).
Guerlain Terracotta Light Powder (03 Natural Warm).
Lancôme L'Absolu Rouge Ruby Cream Lipstick (133 Sunrise Ruby).
Lancôme L'Absolu Rouge Ruby Cream Lipstick (133 Sunrise Ruby).

4. Grafískt og grátt
Sophie Turner, leikkonan úr Game of Thrones, er nær óþekkjanleg eftir að Hung Vanngo lék listir sínar með eyelinerinn við augu hennar. Ef þú ætlar að leika þetta eftir er sniðugt að byrja á augnförðuninni, áður en farði er borinn á andlitið. Þá þarftu ekki að hafa áhyggjur ef þú gerir mistök eða að púðuragnir falli undir augun. Þegar þú ert sátt með augnförðunina seturðu hyljara undir augun og með bursta blandarðu hann upp að augnförðuninni. Þannig færðu hreinni línu við augun og aukna lyftingu. Annað gott ráð er að fara með svartan augnskugga yfir eyelinerinn svo svarti liturinn verði ákafari, jafnari og það ,,blörrar” svolítið ásýndina sem yfirleitt fer okkur, sem komin eru yfir þrítugt, betur. Kaldir gráir tónar ýta undir nútímaleika augnförðunarinnar en þó er mikilvægt að aðlaga eyeliner ávallt að sinni augnumgjörð.

Förðun eftir Hung Vanngo á leikkonunni Sophie Turner.
Förðun eftir Hung Vanngo á leikkonunni Sophie Turner.

Endurskapaðu förðunina með þessum vörum:

Chanel Les 4 Ombres (334 Modern Glamour).
Chanel Les 4 Ombres (334 Modern Glamour).
Urban Decay 24/7 Glide-On Eye Pencil (Perversion).
Urban Decay 24/7 Glide-On Eye Pencil (Perversion).
Becca Ultimate Lipstick Love (Sugar).
Becca Ultimate Lipstick Love (Sugar).

5. Varirnar í aðalhlutverki
Hin sænska Elsa Hosk hefur sannarlega skotist upp á stjörnuhimininn í fyrirsætubransanum. Í þessari förðun eftir Patrick Ta fær skærbleikur varaliturinn að njóta sín en það er tilvalið að prófa bjarta varaliti t.d. fyrir gamlárskvöld.

Förðun eftir Patrick Ta á fyrirsætunni Elsu Hosk.
Förðun eftir Patrick Ta á fyrirsætunni Elsu Hosk.

Endurskapaðu förðunina með þessum vörum:

Shiseido Synchro Skin Self-Refreshing Foundation.
Shiseido Synchro Skin Self-Refreshing Foundation.
Sensai Supreme Illuminator.
Sensai Supreme Illuminator.
YSL Rouge Pur Couture (57 Pink Rhapsody).
YSL Rouge Pur Couture (57 Pink Rhapsody).


Hér fyrir neðan er hægt að fylgjast með Snyrtipennanum á Instagram: 




Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: